
Myglutjon.is er rekið af lögmannsstofunni BZ legal ehf. Eigandi stofunar er Arnar Bjartmarz Lögmaður.
Hefur þú orðið fyrir tjóni vegna myglu?
Ef þú hefur orðið fyrir tjóni vegna myglu eða vatns þá er um að gera að skoða rétt þinn vel. Myglutjon.is býður upp á frítt fyrsta viðtal til þess að fara yfir álitaefnið og meta næstu skref.
Bótaréttur vegna myglutjóns
Fólk getur átt rétt á bótum vegna myglutjóns í ýmsum tilvikum, sem byggja á lögum, dómaframkvæmd og samningum. Hér eru nokkur dæmi:
Fasteignakaup
Ef myglutjón stafar af göllum sem voru til staðar við afhendingu fasteignar sem þú keyptir nýlega getur þú átt rátt á skaðabótum.
Ef seljandi hefur veitt rangar upplýsingar eða vanrækt upplýsingaskyldu sína eða vanrækt upplýsingaskyldu sína getur kaupandi átt rétt á bótum.
Dæmi um dóm Hæstaréttar Íslands má finna hér. Í þessu máli var felt Hæstiréttur á kröfu kaupanda um riftun kaupsamnings sem leiddi til endurgreiðslu kaupverðs og greiðslu vegna ákveðins beins fjártjóns af hálfu seljanda.
Vert er þó að hafa í huga að notuð fasteign telst ekki gölluð nema ágallinn rýri verðmæti hennar svo nokkru varði eða seljandi hafi sýnt af sér saknæma háttsemi. Í dómaframkvæmd hefur oftast verið miðað við 8–10% af kaupverði eignarinnar, þó það geti verið hærra fyrir eldri eignir þar sem fleiri frávik eru að vænta vegna aldurs.
Húsaleigusamningar
Samkvæmt húsaleigulögum ber leigusali ábyrgð á að húsnæði sé í leiguhæfu ástandi. Ef leigusali vanrækir skyldur sínar getur leigjandi átt rétt á bótum.
Dæmi um dóm Hæstaréttar Íslands má finna hér. Í þessu máli félst Hæstiréttur á kröfu leigjenda um endurgreiðslu húsaleigu og skaðabætur vegna tjóns sem stafaði af myglusvepp í hinu leigða húsnæði.
Vátryggingarsamningar
Vátryggingar geta bætt tjón vegna skemmda af völdum vatns eða myglu sem er afleiðing vátryggingaratburðar. það fer eftir skilmálum samninganna hvort og hvernig bætur eru greiddar.
Líkamstjón
Ef þú hefur orðið fyrir heilsutjóni vegna myglu t.d. við vinnu getur verið að þú eigir rétt á bótum. Sönnunarfærsla um tilvist myglu og áhrif hennar á heilsu er oft flókin.
Dæmi um dóm Landsréttar má finna hér. En í þessu máli hafði fór aðili fram á bætur vegna líkamstjóns sem hann taldi sig hafa orðið fyrir við vinnu á mygluskemmdu hús. Landsréttur komst að þeirri niðurstöðu að mygla hafið verið til staðar og hún valdið heilsutjóni. Hins vegar hafði aðilinn sjálfur sýnt af sér stórkostlegt gáleysi með því að nota ekki viðeigandi hlífðarbúnað og var skaðabótaskyldan því takmörkuð.