Fjölbreytt lögmannsstörf og þjónusta

Hvernig get ég aðstoðað?

Þjónusta

Fjölbreytt lögmannsstörf og þjónusta.

Almenn lögfræðistörf

Ég tek að mér almenn lögfræðistörf og ráðgjöf. Í rekstri fyrirtækja og í daglegu lífi einstaklinga geta vaknað upp álitamál sem krefjast nánari skoðunar, ráðgjafar eða jafnvel skjalagerðar s.s. samningagerð o.fl. Hafðu samband og við skoðum þetta saman. Fyrsta viðtalið er þér að kostnaðarlausu. Þar er farið yfir álitaefnið og næstu skref skoðuð.

Skoða alla þjónustu

Erfðaréttur og dánarbússkipti

Tek að mér að aðstoða við gerð erfðaskrár, viðfangsefni sem snúa að fyrirframgreiddum arf og skiptum á dánarbúum. Það er gott að sýna fyrirhyggju í þessu og spyrja sig: hver erfir mig og má maki sitja í óskiptu búi ef ég fell skyndilega frá? Ekki hika við að hafa samband ef þú vilt skoða stöðu þína og erfingja þinna.

Skoða alla þjónustu

Fasteignir

Fasteignakaup eru fyrir flesta einstaklinga stærstu fjárfestingar sem viðkomandi ræðst í. Tek að mér að aðstoða við álitaefni sem geta komið upp og snúa að fasteignum.

Skoða alla þjónustu

Um stofuna

BZ legal ehf. er lögmannstofa rekin af Arnari Bjartmarz. Lögmannsstofan er staðsett á 4 hæð, Fellsmúla 26, 108 Reykjavík. Meginmarkmið BZ legal ehf. er að veita persónulega og góða þjónustu á faglegum grunni. Gætt verður að því að ráðgjöf sé veitt á mannamáli og að mál viðskiptavina sé sinnt af kostgæfni og athygli. Stofan veitir alhliða lögfræðiþjónustu á flestum réttarsviðum íslensks réttar. Nánari upplýsingar um starfsvið stofunar má finna undir starfssvið hér að ofan. Arnar útskrifaðist með mastersgráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands. Arnar er með réttindi til málflutnings fyrir héraðsdómstólum. Þá hefur hann staðist próf í verðbréfaviðskiptum og viðurkenndum bókara.

Hafðu samband